Bóndadagur – Súputónleikar

 

Á morgun föstudaginn 19. janúar er bóndadagurinn.

Þá er við hæfi að bjóða Þorrann velkominn. Í tilefni af því verða súputónleikar kl 12.10 í anddyri Tónlistarskólans. Þetta er tilvalið tækifæri til að brjóta upp hefðbundið föstudagshádegi og eiga ánægjulega stund með ungu fólki í heimi tónlistarinnar.

Boðið verður upp á súpu og brauð fyrir kr. 1000.-.  Tónleikarnir standa í u.þ.b. 40 mínútur.

Hér er kærkomið tækifæri til að næra bæði líkama og sál og kúpla aðeins frá amstri hversdagsins í aðdraganda helgarinnar.

Allir eru velkomnir!