Fréttir

Starfsdagur á mánudaginn

Vegna aðgerða gegn Covid veirunni sem taka gildi á miðnætti sunnudaginn 15. mars hefur verið ákveðið að fella niður alla kennslu í Tónlistarskólanum mánudaginn 16. mars.  Stjórnendur skólans munu fara yfir stöðuna og greina nánar frá hvernig framhaldið verður.  Eins og staðan er í dag reiknum við með áframhaldandi skólastarfi frá og með þriðjudeginum 17.

Starfsdagur á mánudaginn Read More »

Grunnprófstónleikar í anddyri Tónlistarskólans

Þær Eyrún Sigþórsdóttir, Hrönn Eyjólfsdóttir og Ragna Benedikta Steingrímsdóttir, nemendur í rytmískri söngdeild Tónlistarskólans, halda tónleika í anddyri skólans mánudagskvöldið 9. mars kl 20:00Þær eru allar að undirbúa grunnpróf og munu á tónleikunum flytja prófverkefnin, þar sem kennir ýmissa grasa. Meðleikari er Birgir Þórisson. Allir hjartanlega velkomnir.

Grunnprófstónleikar í anddyri Tónlistarskólans Read More »

Tónlistarvalið 2020

Fimmtudaginn 5. mars kl. 20:00 verða tónleikar Tónlistarvals í sal Tónbergi. Tónlistarvalið er samstarfsverkefni grunnskólanna á Akranesi, Brekkubæjarskóla og Grundaskóla, og Tónlistarskólans.  Nemendur í valinu hafa unnið að því undanfarin misseri að æfa lög saman í hljómsveitum og munu bjóða upp á fjölbreytta dagskrá á fimmtudaginn. Þeim til halds og trausts verða svo góðir gestir,

Tónlistarvalið 2020 Read More »

Vegna kórónaveirunnar

Upplýsingar til foreldra Ágætu foreldrar / forráðamennÍ ljósi þess að nú hefur hættustigi almannavarna verið lýst yfir vegna COVID-19 kórónaveirunnaráréttar almannavarnadeild ríkislögreglustjóra mikilvægi þess að allir fylgi leiðbeiningumsóttvarnarlæknis. Nýjustu upplýsingar eru ávallt að finna á vef Landlæknisembættisins:www.landlaeknir.is Foreldrar eru beðnir um að fylgjast reglulega með nýjustu upplýsingum um þau svæði sem skilgreinderu sem hættusvæði. Ef

Vegna kórónaveirunnar Read More »

Bóndadagssúputónleikar

Það styttist óðum í Þorrann og eflaust margir farnir að láta sig hlakka til að gæða sér á þorramatnum. Fyrsti dagur þorra, bóndadagur, er núna á föstudaginn 24. janúar. Af því tilefni er tilvalið að skella í eins og eina súputónleika í anddyri skólans. Húsið opnar kl. 12:00 og tónleikarnir sjálfir hefjast um kl. 12:10 

Bóndadagssúputónleikar Read More »

Vegna veðurs…

Tónlistarskólinn á Akranesi starfar á nokkrum starfsstöðvum. Því getur komið upp sú staða að kennsla sé felld niður á einni starfsstöð en ekki annarri. Þá er starfsfólk skólans búsett á mörgum stöðum á stór Akranessvæðinu. Við ráðum því miður ekki við veðrið þannig að á svona óviðrisdögum er gott að fylgjast sérstaklega vel með tilkynningum

Vegna veðurs… Read More »

Við erum byrjuð aftur!

Gleðilegt nýtt ár öllsömul! Vonandi áttu allir gott jólafrí og mæta ferskir inn í árið 2020. Í tilefni þess að það er jú kominn janúar, þá er kennsla í Tónlistarskólanum komin á fullt skrið aftur. Hlökkum til að sjá og heyra í ykkur!

Við erum byrjuð aftur! Read More »