október 2018

Spunanámskeið í Tónlistarskólanum

Dagana 1.- 2. nóvember fer fram námskeið í Tónlistarskólanum, en á því verður lögð áhersla á spuna og sköpun, gleði og gaman. Munu allir nemendur þessa vikuna leggja námsbækurnar að hluta – eða alveg til hliðar og einbeita sér að eigin sköpunarverkum. Námskeiðinu lýkur svo á föstudeginum 2. nóvember með þrennum örtónleikum, einum fyrir hvern hóp […]

Spunanámskeið í Tónlistarskólanum Read More »

Adele tónleikar

Nemendur í rytmískri söngdeild skólans munu heiðra söngkonuna og lagahöfundinn Adele á tónleikum í anddyri skólans í kvöld, mánudaginn 1. október. Fram koma: Hrönn Eyjólfsdóttir, Ólöf Gunnarsdóttir, Ragna Benedikta Steingrímsdóttir og Rakel Eyjólfsdóttir Meðleikari er Birgir Þórisson píanóleikari. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00, aðgangseyrir er að sjálfsögðu ókeypis og allir velkomnir!  Hlökkum til að sjá ykkur!

Adele tónleikar Read More »