Jónína Arnardóttir

Slitnir Strengir fá menningarverðlaun.

Laugardaginn 26. ágúst 2017 voru veitt verðlaun úr Minningarsjóði Guðmundar Böðvarssonar skálds og bónda á Kirkjubóli og Ingibjargar Sigurðardóttur, konu hans. Afhendingin fór fram í Reykholskirkju í Borgarfirði. Ljóðaverðlaunin hlaut að þessu sinni Steinunn Sigurðardóttir, rithöfundur en Slitnir Strengir, þjóðlagasveit Tónlistarskólans á Akranesi hlaut borgfirsku menningarverðlaunin í ár. Við erum afar ánægð með val Minningarsjóðsins […]

Slitnir Strengir fá menningarverðlaun. Read More »

Laus pláss í forskóla og á selló.

Kennsla hefst í Tónlistarskólanum mánudaginn 28. ágúst Hægt er að bæta við nemendum í forskóla Tónlistarskólans sem er ætlaður nemendum í 1. og 2. bekk grunnskóla. Í vetur verður tekin upp sú nýbreytni að kenna forskólann í Grundarskóla og Brekkubæjarskóla strax eftir skólatíma barnanna. Hægt er að lesa meira um forskólann á heimasíðunni toska.is undir:

Laus pláss í forskóla og á selló. Read More »

Upphaf skólaárs

Tónlistarskólinn hefur opnað aftur eftir sumarfrí. Fyrsti kennsludagur verður mánudagurinn 28. ágúst. Kennarar munu raða niður á stundatöflurnar sínar í seinni hluta næstu viku.  Verið er að fara yfir umsóknir fyrir þennan vetur. Það skýrist nánar í næstu viku hversu margir nemendur af biðlistum munu komast að í vetur. Skrifstofan er opin frá mánudegi til fimmtudags

Upphaf skólaárs Read More »

Hljóðfærakynning

Hljóðfærakynning verður í dag þriðjudag kl. 16-18 í Tónlistarskólanum. Allir eru velkomnir í skólann að kynna sér þau hljóðfæri sem kennt er á í Tónlistarskólanum, hitta kennara skólans og fræðast um hljóðfærin og jafnvel fá að prófa þau. Kynnt verða m.a. strengjahljóðfæri,  ýmis blásturshljóðfæri, píanó, gítar og trommur svo það helsta sé nefnt. Nú stendur

Hljóðfærakynning Read More »

Skráning í Tónlistarskólann.

Við viljum minna á að búið er að opna fyrir skráningar í Tónlistarskólann á Akranesi fyrir skólaárið 2017-2018. Athugið að núverandi nemendur þurfa að staðfesta áframhaldandi nám með umsókn. Einnig þarf að endurnýja umsóknir þeirra sem eru á biðlista. Vakin er athygli á því að tómstundastyrkur Akraneskaupstaðar gildir vegna náms við Tónlistarskólann. Umsóknarfrestur er til 1. júní næstkomandi.

Skráning í Tónlistarskólann. Read More »

Tónleikar í næstu viku

Í næstu viku verður líf og fjör í Tónlistarskólanum. Við byrjum vikuna með forskólatónleikum mánudaginn 15. maí kl 17:00. Þriðjudaginn 16. maí verða tónleikar blásaradeildar í Tónbergi kl 18:00. Sama dag verða tónleikar hljómsveitarsamspils í anddyrinu kl 19:00. Miðvikudaginn 17. maí verða nemendur Guðbjargar með vortónleika  kl 17:00. Seinni vortónleikar Tónlistarskólans verða fimmtudaginn 18. maí kl

Tónleikar í næstu viku Read More »

Tónfundur í Tónbergi

Í dag verða þverflautu-, harmoniku- og píanónemendur Rutar og Steinunnar með tónfund í Tónbergi. Við munum heyra t.d. Óðinn til gleðinnar e. Beethoven, Gamla Nóa, Ég er kominn heim og margt fleira. Allir velkomnir.

Tónfundur í Tónbergi Read More »