Tónleikarnir voru fjölbreyttir og skemmtilegir og það er alltaf erfitt að velja, en að lokum voru valin voru fjögur atriði til að fara á Patreksfjörð. Ákveðið var að senda atriði af TFÚ sem haldið var í nóvemberlok, Kata rokkar en af tónleikunum voru eftirtaldir nemendur valdir áfram; Sigurbjörg Vaka Vigfúsdóttir básúnuleikari (sem er hér á myndinni), Aron Ingi Árnason píanóleikari og Davíð Þór Birgisson píanóleikari. Flottir nemendur sem eru skólanum til sóma!