Forskóli
Hljóðfæri
Söngur
Leikir
Hlustun
1. bekkur
Forskóli 1 er ætlaður nemendum í 1. bekk grunnskólanna.
Hvað gerum við?
Nemendur kynnast tónlistinni í gegn um söng, dans, hlustun, leiki og hrynþjálfun. Nemendur leika einnig á blokkflautur og hin ýmsu ásláttarhljóðfæri ásamt því að búa til sína eigin tónlist. Eftir áramót fá nemendur einnig að kynnast og skoða flest öllum hljóðfærum sem kennt er á í Tónlistarskólanum.
Markmið
Í forskóla 1 er áhersla á að vekja áhuga nemenda á tónlist og að þeir læri undirstöðuatriðin í því að leika tónlist. Nemendur kynnast tónlistinni í gegn um söng, dans, hlustun, leiki og hrynþjálfun.
Hóptímar
Kennsla í forskóla 1 fer fram í grunnskólunum strax að skólatíma loknum. Nemendur eru um það bil 6 saman í hóp og er hver kennslustund um 40 mínútur.
Forskóli 2
Veturinn 2019-2020 var farið af stað með þróunarverkefni í Tónlistarskólanum á Akranesi sem snýr að kennslu yngri barna við skólann.
Þróunarverkefnið snýr að forskólanum í skólanum okkar, sem verður núna tveggja ára nám.
Forskóli 2 er einskonar hljóðfæraforskóli, þar sem börnin velja sér ákveðnar hljóðfærafjölskyldur til að læra um og læra þá einnig að spila á þau hljóðfæri. Þarna er verið að leggja grunn að áframhaldandi hljóðfæranámi við skólann og er forskóli 2 nokkurskonar brú úr forskólanum okkar og yfir í almennt hljóðfæranám. Áherslan verður að mestu leyti á söng, hljóðfæraleik og hrynþjálfun.
Kennslufyrirkomulagið verður þannig að kennt er tvisvar sinnum í viku í um það bil 40 mínútur í senn. Annað skiptið eru nemendur 3 saman í hóp og gerum við ráð fyrir að þeir tímar fari að mestu leyti fram á skólatíma í grunnskólunum, en hitt skiptið eru stærri hóptímar sem fara fram í Tónlistarskólanum. var
Strengjahópur
Þar kynnast nemendur fiðlu og sellói
Hljómborðshópur
Þar kynnast nemendur píanói, harmoniku, hljómborði og marimbum
Ukulelehópur
Þar kynnast nemendur ukulele, gítar og bassa
Tréblásturshópur
Þar kynnast nemendur þverflautu, klarinetti og saxófóni. Nemendur leika á sérstök plasthljóðfæri sem hæfa líkamsþroska þeirra á þessum aldri
Málmblásturshópur
Þar kynnast nemendur trompeti, básúnu,horni og túbu.
Nemendur leika á sérstök plasthljóðfæri sem hæfa líkamsþroska þeirra á þessum aldri
Trommuhópur
Þar kynnast nemendur ýmsum slagverkshljóðfærum