Almennt um námið
Almennt um námið
Aðalnámskrá tónlistarskóla
-
Kennt er samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskólanna, ýmist klassískri eða rytmískri – eftir því í hvaða námi nemandinn er
-
Námið skiptist í 3 námsáfanga; grunn, mið og framhaldsstig
-
Í lok hvers áfanga er tekið samræmt lokapróf.
-
Til að ljúka áfangaprófi þarf nemandi að ljúka bæði prófi á sitt hljóðfæri ásamt sambærilegu áfangaprófi í tónfræðigreinum.
-
Miðað er við að hver áfangi geti tekið um 3-4 ár.
Heimaæfingar
-
Hljóðfæranám byggist að miklu leyti upp á vinnu nemenda heimafyrir
-
Því er mikilvægt að æfa sig vel heima og jafnt yfir vikuna
-
Stuðningur og áhugi foreldra/forráðamanna við námið hefur mikið að segja og hvetjum við foreldra til að styðja vel við krakkana í náminu
Einkatímar og hóptímar
-
Kennt er bæði í einkatímum, sem og hóptímum
-
Dæmi um hóptíma eru tónfræðigreinar, sönghópar, hljóðfærahópar/samspil o.fl.
-