Í gær fóru fram skemmtilegir tónleikar í íþróttahúsinu á Vesturgötu þar sem rúmlega 100 leikskólabörn sungu við undirleik skólahljómsveitar Tónlistarskólans á Akranesi. Lögin voru öll eftir Dr. Gunna og útsett fyrir þennan hóp. Bæði hljómsveitin og krakkarnir hafa æft síðan í janúar og nú var komið að uppskeru! Til hamingju krakkar og allir sem stóðu að þessu verkefni-vel gert, en yfirskriftin var einmitt „Einn fyrir alla, allir fyrir einn!“https://toska.is/wp-content/uploads/2026/03/Syrpan-Dr-Gunni.mp4