Fimmtudaginn 21. maí kl 17:00 mun Sigurjón flytja fjölbreytta efnisskrá sem síðari hluta af framhaldsprófi í þverflautuleik. Efnisskráin er mjög fjölbreytt og áhugaverð og verða meðleikarar bæði á hörpu og píanó með honum á tónleikunum. Verið öll innilega velkomin á flotta tónleika!