Maxímús Músíkús trítlar í tónlistarskólann

24Okt17:0018:00Maxímús Músíkús trítlar í tónlistarskólann

Event Details

Sýningin Maxímús Músíkús trítlar í tónlistarskólanum verður sett upp í Tónbergi af nemendum og kennurum Tónlistarskólans á Akranesi ásamt sögumanni og myndasýningu fimmtudaginn 24. október.

Maxímús er tónlistarmús er sköpunarverk Hallfríðar Ólafsdóttur og Þórarins Más Baldurssonar og í þessari sýningu er músin fjöruga stödd í tónlistarskóla og flækist þar á milli og segir frá mismunandi hljóðfærum og tónlist á skemmtilegan hátt.

Þrjár skólasýningar verða á Maximus fyrri hluta dags og svo verður opin sýning kl. 17.00 þar sem allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

more

Time

(Fimmtudagur) 17:00 - 18:00(GMT+00:00)