Dagana 15. og 18. október munu flestir kennarar við Tónlistarskólann á Akranesi heimsækja Imagine Heritage stofnunina í Aþenu og kynnast m.a. starfi þeirra í Músikþerapíu, gagnvirkum kennsluaðferðum og inngildinu ólíkra nemenda í tónlistarnám. Imagine Heritage hefur undirbúið af mikilli fagmennsku fyrirlestra og upplýsingar og hlökkum við mikið til að kynna okkur starfið hjá þeim.