Metfjöldi nemenda tók Fyrsta stigs próf (G1) eða átján nemendur, fimm nemendur tóku annað stigs próf (G2) og einn nemandi tók sjötta stig og einn áttunda stigs próf.
Ellefu nemendur tóku grunnpróf, og fimm miðpróf. Tveir í söng og þrír í tónfræðigreinum. Einn nemandi tók framhaldspróf en það voru nokkur tímamót, því það eru sjö ár síðan nemandi útskrifaðist síðast með framhaldspróf frá skólanum.
Við erum mjög stolt af nemendunum okkar og þeim árangri sem þau náðu. Framtíð tónlistarlífsins á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit er sannarlega björt!




