Í næstu viku verður líf og fjör í Tónlistarskólanum. Við byrjum vikuna með forskólatónleikum mánudaginn 15. maí kl 17:00. Þriðjudaginn 16. maí verða tónleikar blásaradeildar í Tónbergi kl 18:00. Sama dag verða tónleikar hljómsveitarsamspils í anddyrinu kl 19:00....
Í dag verða þverflautu-, harmoniku- og píanónemendur Rutar og Steinunnar með tónfund í Tónbergi. Við munum heyra t.d. Óðinn til gleðinnar e. Beethoven, Gamla Nóa, Ég er kominn heim og margt fleira. Allir velkomnir.
Búið er að opna fyrir skráningar í Tónlistarskólann á Akranesi fyrir skólaárið 2017-2018. Athugið að núverandi nemendur þurfa að staðfesta áframhaldandi nám með umsókn. Einnig þarf að endurnýja umsóknir þeirra sem eru á biðlista. Vakin er athygli á því að...