Framhaldsprófstónleikar Hafdísar Guðmundardóttur – söngur

Hafdís Guðmundardóttir, nemandi í klassískum söng, heldur framhaldsprófstónleika sína í Hallgrímskirkju í Saurbæ miðvikudaginn 3. júní kl. 20:00.
 
Á efnisskránni kennir ýmissa grasa en Hafdís mun flytja verk eftir:
 
J.S. Bach
Henry Purcell
W.A.Mozart
Edward Grieg
Roger Quilter
Jón Þórarinsson
Pál Ísólfsson
 
Meðleikari er Zsuzsanna Budai.
 
Aðgangseyrir ókeypis og allir velkomnir!