Fréttir

Tónleikar í næstu viku

Í næstu viku verður líf og fjör í Tónlistarskólanum. Við byrjum vikuna með forskólatónleikum mánudaginn 15. maí kl 17:00. Þriðjudaginn 16. maí verða tónleikar blásaradeildar í Tónbergi kl 18:00. Sama dag verða tónleikar hljómsveitarsamspils í anddyrinu kl 19:00. Miðvikudaginn 17. maí verða nemendur Guðbjargar með vortónleika  kl 17:00. Seinni vortónleikar Tónlistarskólans verða fimmtudaginn 18. maí kl […]

Tónleikar í næstu viku Read More »

Tónfundur í Tónbergi

Í dag verða þverflautu-, harmoniku- og píanónemendur Rutar og Steinunnar með tónfund í Tónbergi. Við munum heyra t.d. Óðinn til gleðinnar e. Beethoven, Gamla Nóa, Ég er kominn heim og margt fleira. Allir velkomnir.

Tónfundur í Tónbergi Read More »

Innritun fyrir skólaárið 2017-2018

Búið er að opna fyrir skráningar í Tónlistarskólann á Akranesi fyrir skólaárið 2017-2018. Athugið að núverandi nemendur þurfa að staðfesta áframhaldandi nám með umsókn. Einnig þarf að endurnýja umsóknir þeirra sem eru á biðlista. Vakin er athygli á því að tómstundastyrkur Akraneskaupstaðar gildir vegna náms við Tónlistarskólann. Umsóknarfrestur er til 1. júní næstkomandi. Hér má nálgast umsóknareyðublað til

Innritun fyrir skólaárið 2017-2018 Read More »

Dixon – oktettinn

Dixon-oktettinn heldur tónleika í anddyri Tónlistarskólans fimmtudaginn 4.5. kl.18. Dixon-oktettinn var framlag Tónlistarskólans á Akranesi á lokahátíð Nótunnar 2017. Oktettinn fékk þar viðurkenningu fyrir framúrskarandi flutning. Oktettinn flytur verk eftir t.d. Herbie Hankock, Billy Cobham, Sonny Rollins, Willie Dixon o.fl.

Dixon – oktettinn Read More »

Tónlistarvalstónleikar

Í dag héldu nemendur tónlistarvals hádegistónleika í anddyri Tónlistarskólans. Þetta er samvinnuverkefni milli Grundaskóla, Brekkubæjarskóla og Tónlistarskólans þar sem nemendum unglingadeildar grunnskólanna býðst að taka þátt í tónvali. Þar njóta þeir tilsagnar kennara í rytmískri tónlist við Tónlistarskólann. Tónleikarnir tókust vel og þökkum við gestum fyrir komuna.

Tónlistarvalstónleikar Read More »