Jólatónleikar í vikunni.

Miðvikudaginn 6. desember verða fyrstu jólatónleikar Tónlistarskólans í Tónbergi. Tónleikarnir hefjast klukkan 18:00.

Fimmtudaginn 7. desember verða svo eldri nemendur söngdeildar með aðventutónleika í Akraneskirkju. Þeir tónleikar hefjast einnig klukkan 18:00.

Enginn aðgangseyrir er á þessa viðburði og allir velkomnir.